Hlýja í kortunum

Á morgun klukkan 15:00/Mynd: Veðurstofa Íslands
Á morgun klukkan 15:00/Mynd: Veðurstofa Íslands

Nú er rétti tíminn til að kaupa sólarvörn, sólgleraugu og sólhlíf og fleira sem tengist þessari gulu feimnu kúlu sem stundum heiðrar okkur með nærveru sinni, því hiti er í kortunum hér fyrir norðan í dag og á morgun.

Samkvæmt Veðurstofu Íslands verður fremur austlæg eða breytileg átt á landinu í dag, hiti 10-17 stig, hlýjast fyrir norðan. Það sama á við á morgun en þá gæti hitinn náð upp í 19 gráður, ef marka má veðurkort Veðurstofunnar. Seinni partinn gráta skýin talsvert og verða þau í þeim ham næstu daga, að einhverju leiti. 

Nú er bara að krossleggja fingur og tær og vona að Bogomil Font og félagar hafi rangt fyrir sér er þeir syngja um lygar veðurfréttamanna.

Fleiri fréttir