Höfða mál til að geta afhent Lilju Hofskirkju

Hofskirkja á Höfðaströnd. Mynd:Minjastofnun.is
Hofskirkja á Höfðaströnd. Mynd:Minjastofnun.is

Hofssókn á Hofsósi hefur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra í þeim tilgangi að geta afhent Lilju Pálmadóttur Hofskirkju sem stendur á jörð Lilju, Hofi á Höfðaströnd.

Í frétt á vef Ríkisútvarpsins í dag segir að í stefnu sem birt var í Lögbirtingablaðinu komi fram að á aðalsafnaðarfundi í apríl á síðasta ári hafi verið gengið frá gjafabréfi þar sem félagi í eigu Lilju var afhent kirkjan. Til stóð að afhenda Lilju kirkjuna eftir fundinn en þar sem enginn þinglýstur eigandi reyndist vera að kirkjunni var ekki hægt að þinglýsa afsali. 

Kirkjan á Hofi er timburkirkja, byggð á árunum 1868-70 og var hönnuður hennar Vigfús Reykdal að því er segir á vef Minjastofnunar. Kirkjan var friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði í þjóðminjalögum. 

Í stefnu Hofssóknar segir að kirkjan hafi áður verið í eigu Hjálmtýs Sigurðssonar, kaupmanns í Reykjavík. Viðræður hófst árið 1914 um afhendingu hennar til safnaðarins til eignar og umráða. Afhending fór síðan fram 29. október 1915. Hefur sóknin alla tíð síðan hagnýtt eignina í safnaðarstarfi líkt og hún væri eign safnaðarins, sinnt umsjón hennar og viðhaldi og greitt af henni skatta og skyldur. 

Þar sem samningurinn frá 1915 er glataður er nauðsynlegt að höfða eignardómsmál þannig að Hofssókn fái heimild til að ráða yfir og ráðstafa eigninni.

Því er skorað á alla þá sem telja sig vera eiganda eða eiga rétt til Hofskirkju að mæta á dómþing Héraðsdóms Norðurlands vestra í byrjun febrúar á næsta ári. Að öðrum kosti megi búast við því að eignardómsdómur gangi í málinu í samræmi við kröfur Hofssóknar.

 

Fleiri fréttir