Hofsós fær 15 tonna byggðakvóta
Á fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar í vikunni var lagt fram til kynningar bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, varðandi úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2018/2019. Sauðárkróki er úthlutað 70 þorskígildistonnum og Hofsós 15 þorskígildistonnum. Inga Katrín Magnúsdóttir, fulltrúi Vg, er ekki ánægð með þróun mála og hvetur sjávarútvegsráðuneytið að auka veiðiheimildir á Hofsósi og leyfi til dragnótaveiða verði endurskoðað.
Á fundinum lagði Inga Katrín fram eftirfarandi bókun:
„Nú er svo komið að næstum allur byggðakvóti hefur verið tekinn af Hofsósi án þess að sjávarútvegsráðuneytið hafi með nokkrum hætti komið til móts við þá grafalvarlegu stöðu sem upp er komin í byggðarlaginu og hættu á að sjósókn og starfsemi henni tengd leggist að mestu eða öllu leyti niður vegna skorts á veiðiheimildum. Nú er gert ráð fyrir 15 tonna byggðakvóta til Hofsóss. Þá hefur ákvörðun ráðuneytisins að leyfa aftur dragnótaveiðar sem nú hafa sótt upp í fjörur reynst mikið högg fyrir smábáta á Hofsósi og á öðrum stöðum í Skagafirði. Sú ákvörðun var tekin án samráðs við heimafólk og engu skeytt um mótmæli um vinnubrögð. Er skorað á sjávarútvegsráðuneytið að snúa þessari þróun við og auka veiðiheimildir handa bátum sem gera út frá Hofsósi.“