Hofsós Heim um helgina


Bæjarhátíðin Hofsós Heim verður haldin um helgina,25. til 27. júlí, á Hofsósi.

Hátíðin hefst með útsýnisgöngu upp á Rauðhólshnjúk á föstudeginum klukkan 17:30 og það kvöld verður innig varðeldur og brekkusöngur í kvosinni með Brynjari Elefsen og Valgerði Erlings. Síðan verður pöbbastemning á Retro Mathúsi sem er nýr staður í bláa húsinu í kvosinni sem eitt sinn hýsti Veitingastofuna Sólvík. Í Höfðaborg verður Barsvar frá 23-24 sama kvöld.


Laugardagur
Á laugardeginum verður erfitt að sitja auðum höndum á Hofsósi því að nóg verður um að vera. Klukkan 11 verður prjónakaffi með Sillu Guðmunds í Höfðaborg og á sama tíma verður föndurstund fyrir börn (og fullorðna) á Þangstöðum. Klukkan 13 verður Matarkistan Skagafjörður með bændamarkað í Pakkhúsinu og þá verður einnig markaður í Höfðaborg. Hægt er að panta borð á markaðinn í Höfðaborg hjá Margréti í síma 774-7742 á litlar 1500 krónur.

Á bryggjunni á Hofsósi mun fara fram dorgveiðikeppni fyrir börn klukkan 13:30 og klukkan 14 verður fjársjóðsleit í fjörunni við Pakkhúsið. Kaldir karlar og konur geta skellt sér í sjósund með Sillu Páls klukkan 14:30 í fjörunni. Um þrjú leytið verður síðan mikið húllumhæ á skólalóðinni en þar verður boðið upp á fótboltamót, andlitsmálun, ís fyrir börnin, hoppukastala, karamelluregn og allskyns leiki.

Í Höfðaborg klukkan 17 verður boðið upp á örnámskeið í leiklist í boði Fisk Seafood fyrir alla hressa krakka og unglinga á Grunnskólaaldri. Unnið verður með ævintýri í skapandi ferli sem lýkur á lítilli leiksýningu klukkan 18:45. Gestir eru velkomnir á sýningu og Ólafur Jens leikari og leikstjóri stýrir.

Tónleikarnir Lögin hans Geira verða síðan haldnir í Höfðaborg klukkan 21 og hægt er að panta miða á þá í síma 866-0114. Miðaverðið er 3900 krónur. Að vanda verður síðan pöbba stemning á Retro Mathúsi frá 22 til 01.

Sunnudagur
Í Hofsóskirkju mun fara fram Hatha yoga klukkan 10 með Daníel Þórarinssyni. Margrét tekur niður skráningu í síma 774-7742. Frá klukkan 13 til 17 verður síðan kaffihlaðborð í Samgöngusafninu í Stóragerði og kostar það 2500 krónur á mann, frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.

Paddle North Iceland mun síðan bjóða upp á róður við höfnina bæði föstudag og laugardag. 

Það er því í um að gera að skella sér á Hofsós um helgina, gleðjast og skemmta sér á Hofsós Heim.

Frítt er á alla viðburði á Hofsós Heim nema annað sé tekið fram.

Dagskránna má nálgast hér.

/SMH

 

Fleiri fréttir