Hunda- og kattahreinsun á Sauðárkróki

Orðsending til hunda- og kattaeigenda á Sauðárkróki. Ljósm./BÞ
Orðsending til hunda- og kattaeigenda á Sauðárkróki. Ljósm./BÞ

Hunda- og kattahreinsun fer fram í þjónustumiðstöð sveitarfélagsins að Borgarflöt 27 Sauðárkróki nú í dag 12. janúar, í gamla RKS húsinu. Á vef svetiarfélagins kemur fram að kettir séu kl. 17-18 og hundar kl. 18-19. Eigendur eru beðnir að hafa með sér kvittun hafi þeir greitt leyfisgjald fyrir árið 2015.

„Hunda- og kattahald er óheimilt í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins án þess að þeir séu skráðir og örmerktir. Ekki er leyfilegt að hafa fleiri en tvo hunda og tvo ketti á heimili,“ segir loks á vefnum.  

Fleiri fréttir