Hvar er allt fallega fólkið? Jú, það er í Rabbinu...

Hvað væri Rabb-a-babb án Feykis og hvað væri Feykir án Rabb-a-babbs? Ja, þegar stórt er spurt. Lesendur Feykis sem hafa pínu gaman af að kíkja á hvað sveitungar þeirra nær og fjær eru að sýsla við geta nú lagað stöðuna í gleðibankanum því 18 nýleg Röbb voru færð inn á Feykir.is í vikunni.
Kannski hafa einhverjir vel vakandi lesendur tekið eftir að sú nýbreytni var tekin upp þegar nýjum Feyki.is var skellt á alnetið á dögunum að nú er reglan sú að regluleysi ríkir varðandi hvaða Rabb-a-babb er á forsíðunni. Og ef svo ólíkega vill til að lesandi er ekki að fíla feisið sem birtist þá þarf ekki annað en að rí-fressa og allt annar aðili lætur ásjónu sína lýsa yfir oss úr Rabb-reitnum.
Nú eru Röbbin orðin 121 talsins og er það elsta alveg síðan árið 2004 en þá var það Júrófarinn Stjáni Gísla sem hóf þessa vegferð á Skagafjörður.com. Lesendur verða því að hafa það í huga að sum Röbbin eru komin til ára sinna og aðstæður og þroski þeirra sem svöruðu mögulega á allt öðru plani í dag en þegar svörin voru gefin. Svarendur hafa til dæmis kannski flutt, bæst hefur í barnaskara og kannski tæki fólk allt aðra hluti með sér á eyðieyju í dag en það gerði fyrir fimm árum. Til þess að forðast leiðan misskilning er því upplagt að skoða dagsetningu á birtingu hvers Rabbs sem er svona um það bil nákvæm.
Þeir sem nenna ekki að rífressa í allan dag til að finna eitthvað ákveðið Rabb-a-babb geta sparað sér tíma með því að smella á línurnar þrjár á græna borðanum efst en þar má finna nokkra gamla góða þætti frá fyrri tímum eins og t.d. Dreifarann, Hina brottflognu, Matgæðinga og að sjálfsögðu Rabb-a-babb. Ef smellt er á Rabb-a-babb þá kemur upp listi í tímaröð, nýjustu Röbbin fyrst og síðan koll af kolli.