Í berjamó tveimur mánuðum fyrir jól
Dagmar Ásdís Þorvaldsdóttir á Hofsósi skellti sér í berjamó á mánudaginn, en þá voru akkúrat tveir mánuðir til jóla. Þar sem september og október mánuðir höfðu verið frostlausir fram að því voru berin ennþá óskemmd.
„Þetta var nú meira svona fyrir forvitni sakir, en berin voru í fínu lagi,“ sagði Dagmar, þegar blaðamaður Feykis innti hana eftir því hvað hefði dregið hana í berjamót seint í október. Meðfylgjandi mynd sýnir berin sem týnd voru í gær og brögðuðust prýðilega út á grautinn í morgun.