Íbúar hvattir til að koma áherslum og sjónarmiðum sínum á framfæri

Leikskóli rís á Hofsósi. Mynd: skagafjordur.is
Leikskóli rís á Hofsósi. Mynd: skagafjordur.is

Á fundi sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. nóvemer var undir 54. dagskrárlið fyrri umræða fjárhagsáætlunar. Var hún samþykkt og vísað aftur til nefnda og síðari umræðu í sveitarstjórn.

Í frétt á vef sveitarfélagsins segir að helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 geri ráð fyrir að rekstrartekjur Sveitarfélagsins Skagafjarðar nemi 6.219 milljónum króna hjá samstæðunni í heild, A- og B-hluta, þar af séu rekstrartekjur A-hluta áætlaðar 5.406 milljónir kóna. Rekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta eru áætluð 5.944 milljónir króna, þar af A-hluti 5.298 milljónir króna. Rekstrarhagnaður A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætlaður 275 milljónir. Afskriftir nema 248 milljónum króna og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 261 milljón. Rekstrarhalli samstæðunnar í heild, A- og B-hluta, er áætlaður samtals 234 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir fjárfestingum að fjárhæð 537 milljónir króna, afborgun lána 495 milljónir króna og nýrri lántöku 840 milljónir króna.

Undanfarin ár hefur íbúum sveitarfélagsins gefist kostur á að koma á framfæri áherslum sínum og uppástungum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar. Vegna samkomutakmarkana og persónulegra sóttvarna verða ekki haldnir slíkir íbúafundir að þessu sinni en þess í stað gefst íbúum tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum og uppástungum að í gegnum umræðuvettvanginn Betra Ísland. Eru íbúar hvattir til að nýta þennan umræðuvettvang og hafa áhrif á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2021. Opið verður fyrir innlegg á Betra Ísland til og með 9. desember 2020.

Umræðuvettvangur fyrir fjárhagsáætlun 2021 má finna inn á betraisland.is eða með því að smella hér.

 

Fleiri fréttir