Illa ígrundaður brandari

Bréfið er sem sagt ekki frá Pítötum heldur frá spaugara nokkrum sem hugsaði brandarann ekki til enda.
Bréfið er sem sagt ekki frá Pítötum heldur frá spaugara nokkrum sem hugsaði brandarann ekki til enda.

Þeir voru nokkuð óhressir íbúarnir á Sauðárkróki sem fengu óskiljanlega kveðju inn um bréfalúguna hjá sér eitt kvöldið í vikunni. Gefið var til kynna að Píratar stæðu að baki sendingunni.

Kveðjan hljóðaði á þessa leið: Takk fyrir ekki neitt, þið eruð öll aumingjar. Kv. Píratar.

Nokkur umræða skapaðist um málið á Facebook og menn almennt sammála um að svona gerðu menn ekki. Samkvæmt heimildum Feykis var hér á ferð illa ígrundaður brandari  með enga meiningu að baki. Aðeins örfáir íbúar fengu þann vafasama heiður að fá sendinguna til sín en ljóst er að Pírötum var ekki skemmt.

Fleiri fréttir