Innan við 1% atvinnuleysi

Atvinnuleysi á Norðurlandi vestra var 0,8% í september síðastliðinn.
Atvinnuleysi á Norðurlandi vestra var 0,8% í september síðastliðinn.

Skráð atvinnuleysi í september sl. var innan við 1% á Norðurlandi vestra. Meðalfjöldi á atvinnuleysisskrá í landshlutanum var 30. Atvinnuleysi var umtalsvert hærra hjá konum eða 1,2% á móti 0,5% hjá körlum. Mest var atvinnuleysið í Sveitarfélaginu Skagafirði, sem er jafnframt langfjölmennasta sveitarfélagið. Í Akrahreppi og Skagabyggð var ekkert skráð atvinnuleysi.

Í september í fyrra var atvinnuleysi á Norðurlandi vestra 1,2% og hefur því minnkað um 0,4% á milli ára. Laus störf sem voru skráð á svæðinu í lok september voru tíu en þrjú á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysið á Norðurlandi vestra er mest í aldurshópunum 20-24 ára og 40-44 ára. Þess má geta að í september 2007 var atvinnuleysi karla á Norðurlandi vestra 0,2% en atvinnuleysi kvenna 0,5%.

Atvinnuleysi var minnst á landinu á Norðurlandi vestra í september, 0,8% en mest á höfuðborgarsvæðinu, 2,2%. Fram kemur í skýrslu Vinnumálastofnunar að atvinnuleysi aukist jafnan í október vegna árstíðabundinna starfa. Atvinnuleysistölur fyrir október hafa ekki verið birtar en Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi á landsvísu geti þróast á líkan hátt og í október í fyrra og aukist um 0,2%.

Á landsvísu voru að meðaltali 3.286 atvinnulausir í september og hafði fækkað um 267 frá ágúst. Atvinnuleysi í september mældist 1,9% á landsvísu en 2% í ágúst. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

 

Fleiri fréttir