Íslenska þjóðfylkingin býður fram í Norðvesturkjördæmi

Samkvæmt kosningavef innanríkisráðuneytisins mun Íslenska þjóðfylkingin bjóða fram krafta sína í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Jens G. Jensson skipstjóri í Kópavogi leiðir listann.

Samkvæmt heimasíðu flokksins er gunnstefna hans einstaklingsfrelsi, að auka beint lýðræði, takmörkun ríkisafskipta, gegnsær ríkisrekstur, náttúruvernd og haftalaus milliríkjaviðskipti.

Þá ætlar Íslenska þjóðfylkingin að beita sér fyrir auknu jafnvægi í byggðum landsins, málefnum fjölskyldna og heimila, efla smærri og meðalstór fyrirtæki, sem eru hornsteinar samfélagsins. Málefni öryrkja og aldraðra verða í öndvegi og unnið verður gegn fátækt á Íslandi.

Fimm efstu, auk Jens á lista Þjóðfylkingarinna í Norðvesturkjördæmi, eru Valgeir Jóhann Ólafsson skipstjóri, Þóa Katla Bjarnadóttir leikskólakennari, Einar Hjartarson skipstjóri og Birgir Loftsson sagnfræðingur.

Hægt er að nálgast upplýsingar um framboð HÉR

Fleiri fréttir