Janúarlömb á Óslandi
Það er ekki óalgengt að lömb komi í heiminn mun fyrr en ætlast er til en að þau komi í janúar er kannski heldur snemmt að mati margra. Á Óslandi í Skagafirði fæddust tvö lömb í gærmorgun, hrútur og gimbur, sem ekki hafa enn fengið nöfn, og það sem meira er, þriðja árið í röð sem lömb fæðast í upphafi þorra.
Að sögn Guðmundar Jónssonar, bónda, hefur ærin fengið á fjalli þar sem hún kom ekki til byggða fyrr en um miðjan nóvember og samkvæmt ritúalinu hefur það líklega verið um miðjan september þar sem kindur ganga með í u.þ.b.140 daga. „Það sem að mér finnst merkilegt við þetta er að þetta er þriðja árið í röð sem ég fæ lömb í upphafi þorra,“ segir Guðmundur. „Merkilegra en að það komi eitt og eitt lamb. En ég hef enga skýringu á þessu.“
Guðmundur segir að þessi óvænti sauðburður komi sér ekkert illa þar sem hann hafi nóg pláss til að hafa kindurnar sér í stíu. „Ekkert vandamál ef ekki koma mikið fleiri.“
Þó ekki sé fallegt, svona þegar líf er nýkviknað, að spyrja um fallþunga í sláturtíð á svo snemmbornum lömbum segir Guðmundur hann geta verið um 30 kíló en til samanburðar var meðalþyngd dilka hjá Kjötafurðastöð KS 16,72 kg sl. haust.