Jólafönn á ferð um landið
Swing Kompaníið, sem skipað er þeim Gretu Salóme fiðluleikara og söngkonu, Unni Birnu Björnsdóttur fiðluleikari og söngkonu, Lilja Björk Runólfsdóttur söngkona, Gunnari Hilmarssyni gítarleikara, Leifi Gunnarssyni bassaleikara og Óskari Þormarssyni trommuleikara fer í jólatónleikaför um landið í desember. Ásamt þeim koma fram barnakór og kirkjukór Sauðárkrókskirkju.
Tónleikaförin ber yfirskriftina Jólafönn og er óhætt að fullyrða að þar sé eitthvað á boðstólnum fyrir alla. Einstaklega skemmtilegar og hressandi útsetningar á jólalögum í bland við hátíðleika skapa einstakan atburð sem enginn má láta fram hjá sér fara.