Jólagetraun Skagfirðingabúðar og Byggðasögu Skagafjarðar

Hleypt var af stokkunum í dag, jólagetraun Skagfirðingabúðar og Byggðasögu Skagafjarðar en í verðlaun eru 1. til 7. bindi af hinni vönduðu ritröð Byggðasögu Skagafjarðar, að verðmæti 65.000 kr.

Gestir Skagfirðingabúðar geta svarað laufléttri spurningu úr nýjasta bindi ritraðarinnar og einn heppinn þáttakandi hlýtur vinninginn, þegar dregið verður úr réttum svörum á Þorláksmessu.

Spurningin er að þessu sinni: ,,Á hvaða bæ í Hofshreppi er talið að höfundur Passíusálmanna hafi fæðst?"

 

Fleiri fréttir