Jólahlaðborð Rótarýklúbbsins um næstu helgi

Frá jólahlaðborði Rótarý 2013.
Frá jólahlaðborði Rótarý 2013.

Einn af þeim skemmtilegri viðburðum sem náð hafa að festa sig í sessi fyrir jól Skagfirðinga er jólahlaðborð Rótarýklúbbs Sauðárkróks. Sem fyrr býður klúbburinn Skagfirðingum að koma í íþróttahúsið á Sauðárkróki í stórveislu nk. laugardag.

Hlaðborðið fer fram milli klukkan 12:00 og 14:00 og eru allir hvattir til að mæta. Frítt er inn en fólk getur lagt fram frjáls framlög á staðnum. Viðburðurinn er ætlaður sem samfélags- og styrktarverkefni en mörg fyrirtæki koma að verkefninu og munu hlaðborðin svigna undan girnilegum veitingum.

Fleiri fréttir