Jólakvöldi í Kvosinni á Hofsósi frestað um viku
Jólakvöldi sem vera átti í Kvosinni á Hofsósi annað kvöld hefur verið frestað um viku vegna slæmrar veðurspár. Verður það því haldið þriðjudagskvöldið 8. desember.
Jólamarkaður verður í konungsverslunarhúsinu og veitingastaðurinn Sólvík verður opinn frá 18:00-22:00. Spennandi fyrirtæki verða á staðnum að selja sínar vörur, m.a. Kjólakistan á Siglufirði. „Hlökkum til að sjà þig í jólaskapi,“ segir í tilkynningu frá samtökunum Byggjum upp Hofsós, sem standa fyrir jólakvöldinu.