Jólaljós tendruð á jólatrénu á Kirkjutorgi
Það verður sannkölluð jólastemning á Sauðárkróki í dag, laugardaginn 29. nóvember, þegar ljós verða tendruð á jólatrénu á Kirkjutorgi en tréð er gjöf frá vinabæ Skagafjarðar Kongsberg. Meðan unga kynslóðin bíður eftir jólasveinunum verður boðið upp á akstur í hestvagni í námunda við Kirkjutorg frá kl. 13:30 þar til formleg dagskrá hefst kl. 15:30.
Aðalgatan verður lokuð fyrir bílaumferð frá Kambastíg og að Skagfirðingabraut við Skólastíg frá kl 13-17. Verslanir og fyrirtæki verða opin um allan bæ og ýmislegt á boðstólum m.a. heitt kakó sem er ómissandi við svona tækifæri. Maddömurnar bjóða að vanda upp á kjötsúpu, skátarnir verða í Landsbankanum, vinnustofa myndlistafélagsins Sólons verður opin í Gúttó og Hard Wok Café býður nýjan jólaíspinna og svo mætti lengi telja.
Á morgun eru hátíðarguðþjónustur í Hofsós- og Sauðárkrókskirkjum og aðventuhátíð í Miklabæjarkirkju. Áskaffi býður upp á hangikjöt í hádeginu og sýningin á efri hæðinni verður opin.
Það er úr ýmsu að velja en á vef Svf. Skagafjarðar má skoða er dagskrá vikunnar.