Jólatónar í kvöld og á morgun

Jólatónar verða í Glaumbæjarkirkju í kvöld. Mynd: KSE
Jólatónar verða í Glaumbæjarkirkju í kvöld. Mynd: KSE

Tónleikarnir Jólatónar verða í kvöld klukkan 20:30 í Glaumbæjarkirkju og á morgun þriðjudag í Miklabæjarkirkju klukkan 17:00 og Hóladómkirkju kl 20:30. Fram koma strengjasveit auk ungra söngvara og er aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Strengjasveitina skipa: Hildur Heba Einarsdóttir, Maríanna Ulriksen, Júlía Kristín Pálsdóttir, Sara María Ómarsdóttir, Lilja Margrét Óskarsdóttir, Merete Rabölle, Lilja Diljá Ómarsdóttir, Ragnhildur Sigurlaug Guttormsdóttir, Amalía Sigurrós Stefánsdóttir, Silja Rún Friðriksdóttir, Telma Ösp Einarsdóttir og Matthildur Kemt Guðnadóttir. Stjórnandi er Kristín Halla Bergsdóttir.

Ungar söngstúlkur stíga á svið en það eru þær Matthildur Ingimarsdóttir, Áróra Ingibjörg Birgisdóttir og Ragnhildur Sigurlaug Guttormsdóttir. Stjórnandi þeirra er Helga Rós Indriðadóttir. Meðleikari er Jóhanna Marín Óskarsdóttir.

Fleiri fréttir