Kærleikur, ábyrgð og peningar
Á þriðjudaginn kemur mun Unnur Dís Skaptadóttir mannfræðingur flytja erindið Kærleikur, ábyrgð og peningar – Um þverþjóðleg tengsl Filippseyinga á Íslandi. Erindið verður haldið í Auðunarstofu og hefst kl. 17:00.
Erindið er í röð fræðafunda heima á Hólum og er aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Kaffiveitingar eru í boði.