Kaffi Grýla á Hofsósi

Í kvöld, fimmtudagskvöldið 4. desember, stendur 9. bekkur í Grunnskólanum austan Vatna fyrir jólakaffihúsinu Kaffi Grýla í Höfðaborg á Hofsósi milli kl. 19.30-21.30. Að þessu sinni verður jólaþema. Ilmandi heitt kaffi, kakó eða jólaöl verður á boðstólnum ásamt ýmsu góðgæti sem nemendur 9. bekkjar hafa galdrað fram af stakri snilld.

Jólamarkaður verður haldinn á sama tíma í Höfðaborg og þar gefst tækifæri til að versla í jólapakkann, eins og segir í tilkynningu frá aðstandendum kaffihússins, sem vonast til að sjá sem flesta í kvöld.

Fleiri fréttir