Kaffihúsakvöld til styrktar UNICEF

Þróunarfélagsfræðihópur í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra ætlar að standa fyrir kaffihúsakvöldi til styrktar UNICEF næstkomandi fimmtudaginn 24. nóvember milli klukkan 20 og 22. Á dagskrá verða ýmis skemmtiatriði og Pub Quiz spurningaleikur.

Í vetur hafa nemendur þróunarfélagsfræðihópsins verið að læra um þróunarlönd og er lokaverkefni þeirra  að safna fyrir Neyðarsöfnun UNICEF fyrir Nígeríu og nágrenni en talið er að allt að 200 börn deyi á dag á því svæði.

Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa til og styrkja gott málefni eru boðnir velkomnir á kaffihúsakvöldið.   

Fleiri fréttir