Karlar ræða krabbamein í karlaklefanum
Karlaklefinn er fræðsluverkefni á vegum Krabbameinsfélags Íslands þar sem karlmenn ræða heilsu, forvarnir, veikindi og fræðast um reynslu annarra. M.a. er rætt um dæmigerð einkenni en eins og margir vita eru krabbamein mörg og mismunandi. Þá segja karlar frá veikindum sínum og upplifunum af meðferðum. Einn þeirra er Ingimar Jónsson, bóndi á Flugumýri í Skagafirði, en hann var greindur með mergæxli og átti það á hættu að beinbrotna við minnstu hreyfingu.
Það kom Ingimar á óvart að vera greindur með mergæxli, segir á karlaklefinn.is og miðað við það sem hann hafði lesið sér til um hélt hann að hann væri með beinkrabbamein. Ingimar segir að stofnfrumumeðferð hafi í fyrstu gefið mjög góða raun og náði hann sæmilegri orku, en í október 2018, tveimur árum eftir greiningu, var hann aftur farinn að brotna og aftur kominn á þann byrjunarreit sem hann var á við greiningu. Nú stendur yfir framhaldsmeðferð og hann gerir ráð fyrir að þurfa að fara í aðra stofnfrumumeðferð: „Maður er tæknilega bara drepinn og fylltur af krabbameinslyfjum áður en maður er endurræstur aftur með þessum stofnfrumum. Og svo er maður margar vikur eða mánuði að ná sér. Ég var algjörlega þreklaus fyrst. Gat rétt dregið mig upp og farið í buxur, en ekki mikið meira en það,“ segir Ingimar á karlaklefinn.is.
Sjá nánar HÉR