Kiwanisklúbburinn Drangey afhendir reiðhjólahjálma

Hjálmarnir voru afhentir á leikvellinum við Árskóla í gær, sumardaginn fyrsta. Mynd: Fésbókarsíða Kiwanisklúbbsins Drangs.
Hjálmarnir voru afhentir á leikvellinum við Árskóla í gær, sumardaginn fyrsta. Mynd: Fésbókarsíða Kiwanisklúbbsins Drangs.

Í gær afhenti Kiwanisklúbburinn Drangey krökkum í 1. bekk grunnskólanna í Skagafirði reiðhjólahjálma. Fyrir afhendingu fór lögreglan yfir mikilvægi hjálmanotkunar og brýndi notkun hjálmanna fyrir börnum og fullorðnum.

Fjörtíu hjálmar voru afhentir og að því loknu grilluðu Drangeyjarfélagar pylsur fyrir alla viðstadda.

Fleiri fréttir