Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi boðar til kjördæmisþings fimmtudaginn 14. júlí kl. 20 til að ákveða aðferð við val á framboðslista. Fundað verður á þremur stöðum, þ.e. í Menntaskólanum í Borgarbyggð, Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði og Samstöðusalnum á Blönduósi í gegnum skype til að gera fólki kleift að sækja þingið í sínu nærumhverfi.

Stjórn kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hefur samþykkt eftirfarandi tillögu sem verður lögð fyrir félagsmenn á kjördæmisþingi til staðfestingar.

„Að valið verði á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninganna haustið 2016 með lokuðu flokksvali í samræmi við grein 3.1 í skuldbindandi reglum Samfylkingarinnar um aðferðir við val á framboðslista sem samþykktar voru á flokksstjórnarfundi 25. ágúst 2012.

Kosning í 4 efstu sæti listans verði bindandi og jafnræði kynja verði gætt með paralista samkvæmt grein 5.5 í fyrrnefndum reglum. Atkvæðagreiðslan fer fram með rafrænni kosningu samkvæmt grein 7.1 í fyrrnefndum reglum.'' 

Stjórn kjördæmisráðs hvetur alla félagsmenn til að mæta á fundinn á sínu svæði og taka þátt í undirbúningi og umræðum vegna komandi alþingiskosninga.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir