Kjörstaður vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins er í Verknámshúsi FNV á Sauðárkróki
Sjálfstæðisfélag Skagfirðinga vill taka fram vegna prófkjörs sem nú stendur yfir hjá Sjálfstæðisflokknum á Norðurlandi vestra að kjörstaður á Sauðárkróki er í Verknámshúsi Fjölbrautaskólans við Sæmundahlíð.
Svo óheppilega vill til að í einhverjum auglýsingum stendur einungis Sæmundarhlíð og ekki meiri útskýring á því.
Opið er í dag til klukkan 18 og nk. laugardag 19. júní milli klukkan 10 – 16.
/Fréttatilkynning