KK væntanlegur í fjörðinn

Næstkomandi laugardagskvöld mun hinn ástsæli tónlistarmaður Kristján Kristjánsson, eða KK, mæta með gítarinn sinn og halda tónleika í Ljósheimum í Skagafirði. Að sögn Þrastar Jónssonar, staðarhaldara Ljósheima, mun KK leika sín þekktu lög og krydda tónleikana með því að segja sögur inn á milli. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:30 en húsið opnar klukkustund fyrr.

Kristján varð 60 ára þann 26. mars sl. og af því tilefni blés hann til hátíðahalda í Eldborgarsal Hörpu. Þar fór hann yfir farinn veg, með öllum sínum krókaleiðum, óvæntu beygjum og áningarstöðum og má gera ráð fyrir því að eitthvað verði tekið úr pokahorninu á tónleikum hans í Ljósheimum.

Fleiri fréttir