Kristniboðsmót á Löngumýri hefst í kvöld

Kristniboðsmót með fjölbreyttri dagskrá alla helgina hefst á Löngumýri í Skagafirði í kvöld og stendur til þriðjudags. Allir eru velkomnir að taka þátt í mótinu eða einstaka viðburðum því tengdu.

Á morgun, laugardag kl. 17, verður kristniboðssamvera og kristniboðavígsla. Leifur Sigurðsson kristniboði talar og einnig Samson biskup frá Kenyu. Á sunnudaginn kl. 11:00 verður messa í Miklabæjarkirkju.

Lögð verður áhersla á gott samfélag um Guðs orð og kynningu á kristniboði Íslendina. Á milli samverustundanna verður gott tækifæri til að spjalla saman og njóta náttúrunnar í Skagafirði.

Ræðumenn og fyrirlesarar verða Skúli Svavarsson, Samson biskup frá Kenyu, Leifur Sigurðsson og sr. Ragnar Gunnarsson kristniboði.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Kristniboðasambandsins, www.sik.is. Allir eru hjartanlega velkomnir á mótið jafnt sem einstaka atburði.

 

Fleiri fréttir