KS styrkir kirkjurnar í Skagafirði

Síðustu misseri hefur staðið yfir söfnun fyrir nýjum líkbíl í Skagafirði, eins og komið hefur fram í fjölmiðlum. Frumkvöðlar söfnunarinnar eru félagar í Kiwanisklúbbnum Drangey sem lögðu fyrstir framlag til kaupanna í desember 2019.
Líkbifreiðin sem hefur þjónað kirkjusóknunum í Skagafirði dyggilega undanfarna fjóra áratugi er eins og gefur að skilja orðin gömul og lúin. Bíllinn var áður sjúkrabíll og var gefinn af Rauða kross-deildinni árið 1997. Síðan þá hefur sóknarnefndin á Sauðárkróki séð um að reka bílinn. Stjórn Kaupfélags Skagfirðinga samþykkti á fundi í liðinni viku að leggja þessu samfélagsverkefni lið og styrkja söfnunina um 3 milljónir króna. Þau sem að söfnuninni standa þakka þennan rausnarlega styrk og hvetja jafnframt önnur fyrirtæki og félagasamtök til að leggjast á árarnar á lokasprettinum þegar hyllir undir nýjan bíl.
/Fréttatilkynning
Tengdar fréttir:
Söfnun vegna kaupa á líkbíl
Kiwanis með fyrsta framlag til kaupa á líkbíl
(Fréttin hefur verið uppfærð)