Landsmót hestamanna að Hólum í Hjaltadal

Stjórn Landssambands hestamannafélaga samþykkti samhljóða á fundi sínum, sem haldinn var þriðjudaginn 2. desember 2014, að verða við beiðni Gullhyls  um breytt staðarval á Landsmóti hestamanna 2016. „Eins og kemur fram í beiðni Gullhyls, þá var Landsmót síðast haldið að Hólum 1966 og því viðeigandi að fagna þeim tímamótum að slétt 50 ár séu liðin með því að halda glæsilegt Landsmót á þessum sögufræga stað að nýju,“ segir í fréttatilkynningu frá Lárusi Ástmari Hannessyni formanni LH.

Í fréttatilkynningunni kemur fram að mótsstaðurinn verði færður frá Vindheimamelum heim að Hólum í Hjaltadal og að fyrirhugaðir samningar miðist við þá staðsetningu. Samþykktin er með þeim fyrirvara að Gullhylur sendi staðfestingu þess efnis til LH, frá mennta- og menningarmálaráðherra og sveitastjórn Skagafjarðar fyrir 22.desember 2014.

Á Hólum er glæsileg aðstaða fyrir hendi; mikill fjöldi hesthúsplássa, þrjár reiðhallir, mikið gistirými auk þess sem Sögusafn íslenska hestsins er að Hólum. Þar er einnig rekin æðsta menntastofnun íslenska hestsins í heiminum, en hestafræðideild Hólaskóla er opinber miðstöð menntunar og rannsókna á sviði hrossaræktar, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu á Íslandi,“ segir loks í tilkynningunni.

Fleiri fréttir