Leggur til auknar fjárveitingar til Hólaskóla, Vinnumálastofnunar og Kvennaskólans

Fjárlaganefnd Alþingis hefur nýlega lokið við að afgreiða meirihluta þeirra breytingartillagna sem nefndin hyggst leggja fram við Fjárlagafrumvarp næsta árs og verða þær teknar til annarrar umræðu á þinginu í vikunni. Að sögn Ásmundar Einars Daðasonar, sem á sæti í fjárlaganefnd, eru þar á meðal nokkrar sértækar tillögur fyrir Norðurland vestra. Meðal þess sem lagt er til er veruleg aukning á fjárveitingum til Háskólans á Hólum, að tryggt verði að starfstöð Vinnumálastofnunar verði áfram á Skagaströnd og að veitt verði fé til áframhaldandi viðhalds gamla Kvennaskólans á Blönduósi.

Ásmundur Einar segir fjárlaganefnd hafa tekið ákvörðun um að bæta við 14,5 millj.kr. í rekstrarframlag til Háskólans á Hólum, auk 5 millj.kr. sem koma í lok ársins til að mæta aukakostnaði sem skólinn hefur þurft að standa straum af vegna kalskemmda á túnum og fleira. Þar að auki hefur fjárlaganefnd lagt til við þingið að leggja 40 millj.kr. til uppbyggingar á aðstöðunni við hestafræðideild skólans, þ.e. til að gera úrbætur á kennsluaðstöðunni innandyra og utan.

„Ef þetta fer í gegn sýnir það skíran vilja þingsins til þess að gera þessu námi hærra undir höfði, hestamennsku og hrossarækt í landinu, en Háskólinn á Hólum er lykilstofnun hvað þetta snertir,“ sagði Ásmundur í samtali við Feyki.

Fjárlaganefnd leggur auk þessa til að aukafjárveitingu verði varið til að tryggja starfsstöð Vinnumálastofnunar á Skagaströnd en stofnunin hefur sætt niðurskurði undanfarið ár vegna minnkandi atvinnuleysis.

Nefndin mælist einnig til að 20 milljónum verði veitt til þess að halda áfram viðhaldi á gamla Kvennaskólanum á Blönduósi og að hafnar verði endurbætur á gömlu kennarabústöðunum við hlið skólans. Að sögn Ásmundar leggur meirihluti fjárlaganefndar það til við ríkið að verða við þeirri beiðni sveitarfélagins að hefja það verkefni.

Leggja arðsemiskröfu á ISAVIA til viðhalds á flugvöllum á landsbyggðinni

Í breytingartillögum fjárlaganefndar er einnig lagt til að tekin verði sú stefnumótandi ákvörðun að setja arðsemiskröfu á ISAVIAupp á 500 millj. kr. og nota það til viðhalds á flugvöllum innanlands.

„Allir flugvellir á landsbyggðinni er komnir á það stig að þeir þurfa verulega mikið viðhald. Það hefur aldrei mátt flytja fjármagn úr millilandaflugi yfir í innanlandsflug, opinber ástæða þess hefur verið sú að samkvæmt ESA þá höfum við ekki heimild til þess. Þess vegna ákvað fjárlaganefnd að fara þá leið að leggja til að ISAVIA greiði arð í ríkissjóð sem síðan yrði eyrnamerktur til flugvallaframkvæmda á landsbyggðinni,“ segir Ásmundur Einar og heldur áfram:

„Þessa arðsemiskröfu þarf að mínu mati að leggja á ISAVIAnæstu þrjú til fjögur árin. Þetta eru það margir flugvellir sem hafa verið látnir sitja á hakanum of lengi, við munum aldrei ná að laga alla flugvellina á landinu fyrir þessar 500 milljónir en ef við getum gert þetta á fjórum árum, tekið alltaf ákveðna upphæð og miðað við hvernig rekstur ISAVIA lítur út í dag, ætti það að vera mögulegt. Þá verða innanlandsflugvellirnir komnir í góða stöðu eftir 4 ár.“ 

Ásmundur Einar segir samkomulag vera á meðal meirihluta fjárlaganefndar að skoða einstaka mál sérstaklega fyrir þriðju umræðu og nefnir heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni sérstaklega í því sambandi. Það sé mat meirihluta nefndarmanna að það þurfi að bæta meira í þann málaflokk og að það sé vilji fyrir því að bæta þar við 80 millj.kr. aukalega.

Tillögur fjárlaganefndar verða ræddar á Alþingi í vikunni og er vonast til að hægt verði bera þær undir atkvæði fyrir helgi, að sögn Ásmundar.

Fleiri fréttir