Líflambadagur austan Vatna
Líflambadagur hreppanna fornu, Fells- og Hofs-, Hóla- og Viðvíkurhreppa verður haldinn á Melstað, Óslandshlíð laugardaginn 11. október og opnar fjárhúsið kl 13:00.
Dagskráin er þessa leið:
- Lambhrútasýning, alvanir þuklarar munu þreifa sig áfram og raða hrútum í sæti.
- Úrval hrúta og gimbra til sölu.
- Forystufé til sýnis og sölu.
- Hrútauppboð þar sem Gísli Einarsson mun sjá til þess að hrútar verði slegnir á réttu verði.
Fréttatilkynning