Lilja Dögun Lúðvíksdóttir sigraði í upplestrarkeppninni í Skagafirði

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk í Skagafirði fór fram við hátíðlega athöfn í sal FNV í gærkvöldi en þá kepptu þrettán fulltrúar úr grunnskólunum í Skagafirði í upplestri sem áður höfðu verið valdir eftir forkeppni í skólum sínum.
Á heimasíðu Árskóla kemur fram að 7. bekkingar hafi æft upplestur af krafti í vetur undir stjórn umsjónarkennara sinna og er lokakeppnin nokkurs konar uppskeruhátíð. Sérstök fjögurra manna dómnefnd valdi bestu flytjendurna og voru kynnar keppninnar þrír nemendur úr 8. bekk í skólunum í Skagafirði, sem voru þátttakendur í upplestrarkeppninni í fyrra.
„Lesinn var texti úr bókinni Kennarinn sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk og ljóð að eigin vali. Nemendur úr Tónlistarskóla Skagafjarðar fluttu tónlistaratriði í upphafi athafnar og á meðan dómnefndin var að störfum. Varamenn fluttu einnig ljóð að eigin vali,“ segir í frétt skólans.
Svo fór að Lilja Dögun Lúðvíksdóttir í Árskóla sigraði keppnina, Ingunn Marín B. Ingvarsdóttir í Grunnskólanum austan Vatna lenti í öðru sæti og Bríet Bergdís Stefánsdóttir í Varmahlíðarskóla endaði í því þriðja.