Lilli klifurmús á leiðinni
Þessa dagana standa yfir æfingar hjá Leikfélagi Sauðárkóks á barnaleikritinu Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner. Leikstjóri er Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og áætlaður frumsýningar dagur 27. október.
Að sögn Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur formanns félagsins verður sýningartímabilið nokkuð þétt að þessu sinni en áætlaðar eru minnst 10 sýningar frá 27. okt til 6. Nóvember. „Því mælum við með að fólk tryggi sér miða um leið og miðasala opnar 12. október til að missa ekki af þessu skemmtilega leikriti sem hentar bæði börnum og fullorðnum.“