Ljósmynd Jóns Hilmarssonar vekur athygli

Fjallað er um ljósmynd Jóns Hilmarssonar, fyrrum skólastjóra Grunnskólans austan Vatna í Skagafirði, á breska netmiðlinum Daily Mail. Fyrirsögn fréttarinnar er: „Ég er ljósið – ímynd Krists frelsara birtist í norðurljósum yfir Íslandi.“ Líkt og fyrirsögnin gefur til kynna sýnir myndin norðurljós yfir Akranesi og er líkt við styttu af Jesú Krist í Rio de Janeiro, Brasilíu.

Í svarkerfinu eru ekki allir sammála þessari samlíkingu, sumir segjast fremur sjá goð eða gyðjur úr norrænni goðafræði, Seif eða jafnvel Gandálf úr Hringadróttinssögu. Sitt sýnist hverjum en hvernig sem því líður má þar skoða einstaklega fallegar ljósmyndir af norðurljósum frá Jóni Hilmarssyni.

 

Fleiri fréttir