Lögregla og Skagfirðingasveit á rúntinn í tilefni 112 dagsins
Ellefti febrúar hefur gjarnan verið notaður til að beina athyglinni að neyðarþjónustu og almannavarna bæði hér á landi og víðar í Evrópu og nefndur Einn, einn, tveir dagurinn. Oft hefur dagurinn verið meira áberandi en í dag sem hlýtur að vera vegna Covit-áhrifa og sóttvarnareglna. Björgunarsveitin Skagfirðingasveit og Lögreglan á Sauðárkróki ætla í tilefni dagsins að taka rúnt um bæinn í dag.
Hefst rúnturinn klukkan 18.00 við Sveinsbúð, húsakynni björgunarsveitarinnar að Borgarröst, og ekið sem leið liggur í Túnahverfið, í Háuhlíð og svo einn góðan sveig niður í bæ. Búast má við mikilli halarófu aðgerðabíla og forvitnilegt fyrir alla að líta hana augum og allir hvattir til að gera það.
Á heimasíðu Lögreglunnar kemur fram 112-dagurinn sé samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land.