Lokað fyrir heita vatnið á Sauðárkróki og nágrenni á miðvikudaginn

Áríðandi tilkynning til íbúa á Sauðárkróki, norðvesturhluta Hegraness og Sauðárkróksbraut að Gili. Lokað verður fyrir rennsli á heitu vatni miðvikudaginn 8. september kl. 16 vegna viðhalds í aðaldælustöð. Lokunin mun standa fram eftir kvöldi en reynt verður að hraða framkvæmdum eins og kostur er.

Íbúum er bent á að skilja ekki eftir opna krana, slökkva á gólfhitadælum og huga vel að húskerfum þegar vatni verður hleypt á að nýju. 
Skagafjarðarveitur biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir