Lokaskýrsla vegna „Fræðslustjóra að láni“ hjá Svf. Skagafirði

Vorið 2015 skrifuðu Sveitamennt. Mannauðssjóður Kjalar, Farskólinn og sveitarfélagið Skagafjörður undir samning um ,,Fræðslustjóra að láni" sem gengur út á að greina fræðsluþarfir starfsmanna sveitarfélagsins og gera áætlun um að sinna þeim.
Síðastliðinn þriðjudag fékk sveitarstjóri Skagafjarðar lokaskýrslu vegna verkefnisins í hendur. Skýrslan inniheldur niðurstöður úr greiningarvinnu stýrihóps, sem skipaður var fulltrúum starfsmanna og Markviss ráðgjafa Farskólans.
Viðamikil viðhorfskönnun var lögð fyrir starfsmenn sveitarfélagsins vorið 2015 og fræðsluáætlun sett saman í kjölfarið, fyrir þá starfsmenn sem eru í Kili og Öldunni. Á vefsíðu Farskólans er þeim sem að verkefninu komu þakkað gott samstarf undanfarana mánuði.