Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi bárust rétt fyrir klukkan níu
Margir voru orðnir langeygir eftir síðustu tölum úr Norðvesturkjördæmi þegar þær bárust um kl 8:48 í morgun. Greidd atkvæði voru 17.444 og kjörsókn var því 81,2%. Eftirfarandi þingmenn náðu kjöri:
Eva Pandóra Baldursdóttir (P)
Elsa Lára Arnardóttir (B)
Guðjón Brjánsson (S)
Gunnar Bragi Sveinsson (B)
Haraldur Benediktsson (D)
Lilja Rafney Magnúsdóttir (V)
Teitur Björn Einarsson (D)
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir (D)
Hlutfallslegt fylgi samkvæmt lokatölum varð eftirfarandi:
Björt framtíð: 3,5%
Framsókn: 20,8%
Viðreisn: 6,2%
Sjálfstæðisflokkur 29,5%
Íslenska þjóðfylkingin 0,5
Flokkur fólksins 2,5%
Píratar 10,9%
Samfylkingin 6,3%
Dögun 1,7%
VG 18,1%