Lokun bókasafnsins
Starfsfólk Héraðsbókasafns Skagfirðinga biður þá lánþega sína sem enn eiga eftir að skila bókum að gera það sem fyrst. Safninu verður lokað á fimmtudaginn vegna framkvæmda.
Nýtt skráningarkerfi verður tekið upp og því er nauðsynlegt að öllum bókum verði skilað svo hægt verði að skrá þær inn í nýja kerfið.
Fréttatilkynning
