Lummudagar nálgast
Hinir árlegu Lummudagar eru framundan, en þeir hefjast fimmutdaginn 25. júní með setningarathöfn við sundlaugina á Sauðárkróki. Á Lummudögum verða götuskreytingarnar, götugrillin og götumarkaðarnir á sínum stað og um að gera að taka helgina frá.
Á setningarathöfninni verður hægt að gæða sér á fiskisúpu og einnig fer fram blakmót sem hefst kl. 17:30. Loftboltamót verður við íþróttahúsið kl. 20.00, en mikilvægt er að skrá liðin fyrirfram.
Á föstudeginum eru hinir vinsælu tónleikar VSOT (Villtir svanir og tófa) í Bifröst en þeir eiga sér sinn fasta aðdáendahóp. Sápuboltinn verður á sínum stað í Ártúninu en hann hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár.
Lummumeistari 2015 verður krýndur á laugardeginum og hefst lummukeppnin kl 14:15. Eins og vanalega verður markaður á Aðalgötunni og skráning á hann er í fullum gangi. Þátttakendur mæta með sín eigin borð og það kostar ekkert að vera með. Trúðurinn Wally mætir á svæðið en hann er fjöllistamaður og er hann umsjónarmaður Sirkus Íslands. Á laugardeginum verður svo tónlistarhátíðin Drangey music festival, þar sem vegurinn endar, á Reykjum á Reykjaströnd, en þar kemur fram flott tónlistarfólk og er hátíðin góð viðbót við dagskrána.
Hér er hægt að sjá nánari dagskrá.
Allar nánari upplýsingar og skráning eru hjá asasvanhildur@gmail.com