feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
09.07.2021
kl. 20.00
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur samið við bandaríska leikmanninn Maddie Sutton um að leika með meistaraflokki kvenna næsta tímabil. Maddie er 23 ára framherji og 182cm á hæð, lék með Tusculum Pioneers og vann nú í vetur með liðinu back to back SAC meistaratitilinn. Hún var valin kvenn-íþróttamaður ársins 2021 í Tusculum University og valin í lið ársins fyrir 2020-21 D2CCA All-American.Stjórn Tindastóls er ánægð með að Maddie sé að koma til félagsins og að hún muni styrkja liðið fyrir komandi átök.
Hérna er meira um hana
.
/Fréttatilkynning
Fleiri fréttir