Magnús í Hestasporti hlýtur viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi

Magnús Sigmundsson ásamt Elíasi Bj. Gíslasyni forstöðumanni Ferðamálastofu á Akureyri og Arnheiði Jóhannsdóttur hjá Markaðsstofu Norðurlands. Á myndinni er einnig Andreas Baumgartner hjá Inspiration Iceland, en það fyrirtæki fékk viðurkenninguna Sproti ársins. Mynd: KSE
Magnús Sigmundsson ásamt Elíasi Bj. Gíslasyni forstöðumanni Ferðamálastofu á Akureyri og Arnheiði Jóhannsdóttur hjá Markaðsstofu Norðurlands. Á myndinni er einnig Andreas Baumgartner hjá Inspiration Iceland, en það fyrirtæki fékk viðurkenninguna Sproti ársins. Mynd: KSE

Markaðsstofa Norðurlands veitir árlega þrjár viðurkenningar til fyrirtækja og einstaklinga í ferðaþjónustu sem þykja hafa skarað fram úr á Norðurlandi. Viðurkenningarnar voru veittar á Uppskeruhátíð ferðþjónustunnar sem haldin var í Skagafirði 20. október 2016. Ein þessara viðurkenninga er fyrir störf í þágu ferðaþjónustu sem að þessu sinni kom í hlut Magnúsar Sigmundssonar i Hestasporti í Skagafirði.

Í umsögn um viðurkenninguna segir:

Viðurkenninguna fyrir Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi fær einstaklingur sem hefur haft góð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi í heild sinni og hefur starfað beint eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Viðurkenninguna í ár fékk Magnús Sigmundsson eða Magnús í Hestasporti eins og hann er oft kallaður.

Það má rekja brennandi áhuga Magnúsar á ferðaþjónustu til þess að Sveinn Jóhannsson á Varmalæk fór fyrstur manna með erlenda gesti í lengri hestaferð yfir Kjöl árið 1974. Þessi ferð markaði upphaf lengri hestaferða á Íslandi eins og þær eru reknar í dag.  Magnús og Björn sonur Sveins voru góðir félagar og stofnuðu ásamt Sveini og Sigríði dóttur Sveins árið 1986 fyrirtækið Hestasport. Hestasport kom á fót sýningunni "Til fundar við íslenska hestinn" þar sem erlendir ferðamenn á hringferð sinni  komu við á Vindheimamelum þar sem þeim voru kynntar gangtegundir og þýðleiki íslenska hestsins.   Þar með var Hestasport komið með sérstöðu sem voru hestasýningar í Skagafirði, vöggu íslenskar hestamennsku en í dag eru hestasýningar víða um land í þessari mynd.

Í framhaldi af þessu fór Magnús að leita að náttúrufarslegri sérstöðu svæðisins. Skagfirsku jökulsárnar heilluðu og á Hvítá voru menn farnir að reyna flúðasiglingar að erlendri fyrirmynd. Hann leitaði stuðnings hjá þeim frumkvöðlum sem þar voru á ferð og tilraunaferðir voru farnar á skagfirsku ánum  árin 1992 til 1994. Í framhaldinu var leitað til erlendra leiðsögumanna  og það er ekki síst þeim nepölsku leiðsögumönnum að þakka að hægt var að þróa ferðirnar enn frekar þannig að fyllsta öryggis væri gætt og þannig hægt að setja ferðirnar í sölu.

Árið 2002 ákveða Magnús og Björn síðan að skipta félaginu og tók Björn yfir sýningarnar "Til fundar við íslenska hestinn" en Magnús hélt nafni fyrirtækisins og hélt áfram með hestaferðir og flúðasiglingar. Á þessum tíma hóf Magnús einnig byggingu sumarhúsa sem hafa reynst góð viðbót við ferðaþjónustuna á svæðinu og dregið að aukinn fjölda gesta.

Magnús er frumkvöðull sem hefur ávallt haft hagsmuni Skagafjarðar og Norðurlands að leiðarljósi. Hann hefur í gegnum árin sýnt að hann hefur trú á uppbyggingu í ferðaþjónustu, vilja til að láta gott af sér leiða og baráttuþrek til að koma málum áfram. Þetta hefur hann gert annars vegar með því að byggja upp eigið fyrirtæki, skapa þannig störf, leggja áherslu á úrvalsþjónustu og búa til margumrædda segla. Hins vegar með því að vera ötull talsmaður Norðlendinga í málefnum ferðaþjónustunnar og annarri hagsmunagæslu.

 

 

Fleiri fréttir