Markaðstorg fyrir kjöt beint frá bónda

7 parta sögun. Mynd: Matís.
7 parta sögun. Mynd: Matís.

Á morgun opnar markaðstorg á netinu sem kallast Kjötborðið þar sem bændur og aðrir kjötframleiðendur geta með einfaldari hætti en áður selt framleiðslu sína beint til neytenda. Vignir Már Lýðsson framkvæmdastjóri Kjötborðsins segir viðbrögðin hafa verið vonum framar en nú þegar hafi hátt í þúsund manns skráð sig á póstlista Kjötborðsins sem áhugasamir kaupendur að kjöti beint frá býli.

“Auðvelt aðgengi á vef er mikilvægt í nútímasamfélagi en neytandinn vill geta farið inn á vefsíðu og keypt án vandkvæða, gefið kjöti og seljendum einkunn og deilt reynslu sinni með öðrum á samfélagsmiðlum,” segir Vignir Már.

Hver bóndi eða framleiðandi er með sinn aðgang þar sem haldið er utan um framboð og tekið við pöntunum. Í fyrstu atrennu verður einblínt á tvo yfirflokka kindakjöts; heila og hálfa skrokka. Í framhaldinu verður kjöt- og vinnsluflokkum bætt við eftir því sem spurn er eftir. Innan skamms verður nautakjöt, grísakjöt, folaldakjöt, hreindýrakjöt og jafnvel gæsakjöt sett í borðið.

“Hugmyndin að vefsíðunni spratt upp í haust þegar við sáum þann mikla fjölda framleiðenda sem hafði reynt að bjóða kjötið sitt til sölu í gegnum tugi mismunandi auglýsingasíðna hér og þar á netinu þar sem oft og tíðum er afar erfitt að finna tiltekna hluti. Aðgengi neytenda var afar slæmt og erfitt fyrir fólk að átta sig á úrvalinu auk þess sem það getur verið erfitt fyrir bændur að finna réttu síðurnar til að selja á,” segir Vignir.

 

Fleiri fréttir