Miðnæturbað opnar á Hofsósi í kvöld
Infinity Blue er fyrirtæki sem stendur fyrir sérstökum flottímum, eða miðnæturböðum í Sundlauginni á Hofsósi. Verður opið í lauginni fyrir þessa tíma frá klukkan 22:00 til 01:00 alla daga vikunnar.
Það er hún Unnur Valdís hjá float.is sem hannar flothetturnar sem notaðar eru í miðnæturböðunum. Um er að ræða fljótandi slökun sem smám saman er að ryðja sér rúms á Íslandi og er Sundlaugin á Hofsósi kjörin fyrir slíka starfsemi vegna nálægðarinnar við sjóinn og náttúruna. Hægt er að panta tíma á vefsíðu Infinity Blue.