Málefni landsbyggðarinnar og byggðajafnrétti á meðal helstu baráttumála
Stjórn VG ásamt varastjórn Svæðisfélags VG í Skagafirði fundaði 15. apríl sl. vegna stjórnmálaástandsins í landinu og fór yfir stöðu mála. Á Facebook-síðu VG og óháðra í Skagafirði segir að er landsstjórnin sé sögð endanlega rúin trausti. „Framundan eru alþingiskosningar og stjórnarskipti í haust eða síðar næsta vetur. Stjórnin leggur áherslu að á tíminn fram að kosningum verði nýttur vel til að að skerpa á kosningaáherslum hreyfingarinnar og kynna þær fyrir almenningi. Mikilvægt er að málefni landsbyggðarinnar og byggðajafnrétti verði á meðal helstu baráttumála hreyfingarinnar fyrir komandi kosningar,“ segir í ályktuninni.
„Ákall almennings nú er um lýðræði, breytingar og traust. VG mun ganga til kosninga með lýðræðisumbætur að leiðarljósi. Liður í því er að kjördæmisráðið í NV kjördæmi í samvinnu við svæðisfélögin, standi síðla sumars eða hausts fyrir forvali til röðunar á framboðslista vegna komandi alþingiskosninga. Þar gefst félögum kostur á að bjóða fram krafta sína fyrir hreyfinguna, því fólki sem átt hefur sæti á lista gefst tækifæri til að endurnýja umboð sitt og Vinstrihreyfingunni grænu framboði í Norðvesturkjördæmi að tefla fram þeim lista sem félögum þykir sterkastur og sigurstranglegastur. Það er því niðurstaða og álit stjórnar svæðisfélags VG í Skagafirði að forval skuli fara fram í aðdraganda komandi alþingiskosninga,“ segir loks á síðunni.