Mikilvægt að tilkynna strax séu hross á vegi
Vátryggingafélag Íslands vill vekja athygli á því að undanfarna mánuði hefur slysum þar sem ekið hefur verið á hross fjölgað nokkuð. Slíkum slysum hefur reyndar farið fækkandi undanfarin ár en síðustu þrjá mánuði hefur orðið breyting á. Hvetur VÍS ökumenn til að nota háu ljósin sé enginn bíll fyrir framan og að tilkynna strax til Neyðarlínunnar ef hross eru sjáanleg utan girðingar.
Einnig hvetur VÍS eigendur hrossa til að tryggja að girðingar þeirra séu heldar, hlið séu sett við ristarhlið ef þau eru full af snjó og ef girðingar eru komnar undir snjó þurfi að gera ráðstafanir eins og að skipta um beitarhólf.
„Oftar en ekki verður mikið tjón í þessum slysum. Af þeim sem nýlega eru tilkynnt til VÍS hefur sem betur fer ekki orðið alvarleg slys á fólki en í öllum tilvikum hefur þurft að aflífa hrossin eða þau drepist í slysinu sjálfu og draga bíl af slysstað,“ segir í frétt á vef VÍS.