Miklar áhyggjur vegna stöðu löggæslumála
Á félagsfundi Lögreglufélags Norðurlands vestra sem haldinn var á fimmtudaginn var samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Félagsfundur LNV (Lögreglufélags Norðurlands vestra) haldinn fimmtudaginn 06.10.2016, lýsir yfir miklum áhyggjum vegna stöðu löggæslumála á Norðurlandi vestra. Mannfæð, mikill niðurskurður og önnur utanaðkomandi áhrif eru þess valdandi að lögreglumenn telja sig ekki getað brugðist við innan eðlilegs útkallstíma ef til kemur innan svæðis. Ítrekað hefur það gerst að lögreglumenn séu einir á öllu löggæslusvæðinu þ.e.a.s. á öllu Norðurlandi vestra og hafi ekki aðra lögreglumenn að leita til. Þetta hefur margítrekað gerst og er engan veginn viðunandi. Metnaður lögreglumanna hnígur í aðra átt sem og ábyrgð gagnvart íbúum svæðisins. Er það skoðun lögreglumanna innan LNV að rétt sé að íbúum svæðisins sé kynnt hvernig staðan er.“