Minkarækt í deiglunni í Héraðsdal II
Áætlað er að starfsemi hefjist á nýjan leik í vetur í minkahúsunum í Héraðsdal II í Skagafirði. Það er Urðarköttur ehf. á Syðra-Skörðugili sem hefur tekið húsin á leigu og hefur þar rekstur með baktryggingu reyndra danskra minkabænda.
Í frétt á mbl.is segir að minkabú hefur verið rekið í Héraðsdal II með hléum í allmörg ár og þar eru stór minkahús og íbúðarhús. Síðast var þar minkabú í eigu danskrar fjölskyldu sem hætti rekstri í lok árs 2018 og íslenskt félag hennar varð gjaldþrota. Arion-banki leysti til sín eignirnar og seldi Kaupfélagi Skagfirðinga.
„Við rekum fóðurstöð og mikið hráefni fellur til við matvælaframleiðslu hjá okkur. Við vorum að skoða möguleika á að koma þessu í gang aftur og ræddum möguleika á samstarfi við Einar á Skörðugili. Þá var kreppan að skella á og hann treysti sér ekki í þetta. Hann kom nú að máli við okkur um að taka eignirnar á leigu, sér tækifæri í þessu,“ segir Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar KS. Kaupfélagið hefur áður haft til skoðunar að hefja rekstur á stóru loðdýrabúi til að nýta betur fóðurstöð og hráefni en ekki orðið úr.
Það glittir í bjartari tíma
Það er Einar Einarsson, bóndi á Syðra-Skörðugili, sem er í forsvari fyrir Urðarkött. Hann tjáði Feyki í samtali að danskir minkabændur hefðu leitað til sín um samstarf í kjölfar þess að allur minkastofninn í Danmörku var felldur sökum Covid-smits nú í vetrarbyrjun. Einar lagði áherslu á að um væri að ræða aðila sem væru ekki í neinni ævintýramennsku, þetta væru reynslumiklir bændur sem hefðu trú á minkarækt og mikinn metnað. Ásættanlegt verð fæst fyrir vinnu Urðarkattar, allur kostnaður verður greiddur og ef markaðurinn tekur við sér og verð hækka þá hafi verið samið um að Urðarköttur njóti þess einnig að hluta. Samið var um að verkefnið tæki til þriggja ára hið minnsta.
Einar sagði jafnframt að aukning í framleiðslu væri jákvæð hvað það varðar að hún kalli á aukna fóðurframleiðslu hér heima. Áfallið í minkaræktinni í Danmörku hefði hins vegar haft slæm áhrif á þá aðila hér á landi sem selt hafa hráefni í fóður til Dana, þar er nú engin eftirspurn og líklegt að minkarækt hefjist ekki í Danmörku á ný fyrr en í fyrsta lagið árið 2022 og þá er óvíst hversu margir bændur taka upp þráðinn.
Minkabændur hafa átt undir högg að sækja hér á landi síðustu árin en minka- og refabændur voru um 200 talsins þegar mest lét, margir þá með lítil bú. Lengi vel voru þeir síðan um 30 talsins en nú eru aðeins níu bú starfrækt á Íslandi og Urðarköttur eini aðilinn hér norðan heiða. Lélegt verð hefur fengist fyrir minkinn síðustu ár sökum mikils framboðs og margir bændur hafa þurft að hætta rekstri. Einar sagði Feyki þó að nú í vikunni hafi verið uppboð í Finnlandi og þar hefði myndast vonarglæta því einhver hækkun hefði orðið á verði og skinnin hefðu selst. Það væru því líkur á bjartari tímum.