Minningarlundurinn um Jónas Kristjánsson níu ára á dögunum

Minningarlundurinn/Mynd: BG
Minningarlundurinn/Mynd: BG

Lesandi hafði samband við okkur á Feyki og vildi vekja athygli á að um þessar mundir eru níu ár síðan minningarlundurinn um Jónas Kristjánsson, héraðslækni afhjúpaður á Sauðárkróki. 


Jónas, sem gengdi stöðu héraðslæknis á Sauðárkróki frá 1911 til 1937, var einn helsti hvatamaðurinn að stofnun Náttúrulækningafélags Íslands. Lesandinn vildi minna á þennan fallega lund en hann telur að fáir viti af honum en þar er hægt að setjast á bekk og njóta kyrrðarinnar sem umlykur lundinn. Lundurinn er staðsettur við hliðina á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks.

Fleiri fréttir