Mjólkursamlag KS framleiðir Kefir

Á markað er kominn ný vara sem þróuð var og framleidd er af Mjólkursamlag KS á Sauðárkróki. Um er að ræða aldagamla drykk, Kefir sem margir þekkja, og er MKS fyrst til að framleiða á Íslandi. Varan er seld undir vörumerki Mjólku og er þegar komin í matvöruverslanir.

Kefir á sér aldagamla og leyndardómsfulla sögu, sem rekja má alla leið til Kákasusfjalla á milli Svartahafs og Kaspíahafs. Þessi heilnæma mjólkurvara inniheldur lifandi góðgerla sem fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að hafi jákvæð áhrif á meltingu og almenna heilsu. Gerlarnir verða til þegar svokallað kefírkorn er látið gerjast í mjólk, en uppruni kornanna er sveipaður dulúð og voru þau af sumum talin gjöf frá æðri máttarvöldum. Þeir gengu kynslóða á milli og ferðuðust víða.

Drykkurinn var oftast búinn til úr kúamjólk, ærmjólk eða geitamjólk, sem hellt var í vökvaheldan sekk úr geita- eða sauðskinni ásamt kefírkorninu og látin gerjast úti í sólinni þar til vinnudegi lauk. Þá var sekkurinn hengdur upp þar sem umgangur var mikill, t.d. við útidyr, og stjakaði heimilisfólk við honum í hvert sinn sem gengið var framhjá. Þannig var komið í veg fyrir að mjólkin og kefírkornið skildu sig.

Þó aðferðirnar hafi breyst lítillega í gegnum aldirnar, þá inniheldur Kefir frá Mjólku sömu hollu góðgerlana og forverinn, eða öllu heldur afkomendur þeirra — og með aðstoð nútímatækni hefur þeim reyndar fjölgað aðeins. Þeir eru nú 14 talsins og leggja allir sitt af mörkum til bættrar heilsu og betri líðan.

Kefir frá Mjólku er fáanlegur í tveimur ljúffengum bragðtegundum; jarðarberja og bláberja. En hreinn Kefir  er væntanlegur innan tíðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir